Howdy peeps! jæja..nú er orðið alveg soldið síðan að ég bloggaði!...þannig að á meðan að ég hef ekkert að gera, nema það sem að ég ætti í rauninni að vera að gera, þá ætla ég að skjóta inn einu bloggi eða svo...
það hefur ekkert merkilegt á daga mína drifið, nema löngun í partý eins og vanarlega.
....þá er ég ekki að meina fsu-böll, því að þau sökka feitast....
SHAME ON YOU NFSU!
það má bara ekkert lengur!ekkert áfengi, engar myndavélar, og það liggur við að það sé tekið úr manni DNA til að staðfesta skilríkin!
eru böllin að fara til fjandans?!? verður næsta ball måske haldið í bílskúr? það lítur allt út fyrir það...
ég fyrir mig vil fá ALVÖRU sveitaball takk fyrir! eins og þorrablótið! vaaaá hvað mig hlakkar til þangað til þá
það og áramótin eru það sem ég bíð alveg geðveikt spennt eftir!
..og svo er það náttúrulega afmælið mitt þann 12 feb, á þriðjudegi
þá vill svo skemmtilega til að ég verði ein heima, og maður veit aldrei nema að maður kalli í sína nánustu og haldi almennilega drykkju!
það er alveg sama hvaða dagur er, allir dagar geta verið föstudagar
(flöskudagar)
Sigrún, made in sveitin....